wildrabbit.org

The home of Captain Weirdo.

wildrabbit.org header image 2

Eins og flís við rass.

December 10th, 2007 · No Comments

Hvaðan í fjandanum kemur þessi flís og af hverju ætti hún að passa við rass? Er þetta flísnærbuxur, er 66°N með eitthvað special deal á svoleiðis? Allaveganna, eins og vottar jehóva sáu ljósið þá er ég farinn að sjá ljósið fyrir hinum gífurlega magnþrunga vegg sem er stærðfræðigreining IIIB. Það hefur róað minn litla kropp talsvert þegar ég byrja að skilja þessa stærfræði. Ég myndi frekar segja samt að ég væri að skilja hvernig ég ætti að reikna þetta frekar en stærfræðina á bakvið en ég leyfi Höskuldi dæmatímakennaranum mínum að njóta sín í þeim skilningi.  Því er ég að vona að stærðfræði kunnátta mín eigi eftir að lýsa mér leið í gegnum prófið á morgun.

Mér leiðist að drekka gos úr dós, það er svo mikil spenna og vanþekking á drykknum sem fer fram. Maður veit aldrei hversu mikið er eftir(nákvæmlega) né hvernig liturinn er á gosinu (gefið að maður hefur ekki helt því í glas). Ég ætla vona að sá gosdrykkur sem ég mun taka með mér í prófið eigi ekki eftir að vera aðaláhyggju punktur prófsins. Nú ætla ég að reikna aðeins meir og vona að allt gangi í haginn á morgun.

Vonaðu það líka ellegar munu þrír saklausir hvolpar missa lífið.

Tags: Blogroll

0 responses so far ↓

  • There are no comments yet...Kick things off by filling out the form below.

Leave a Comment