Montreal Vs. Reykjavík. Það er mjög skrítið að vera í útlöndum. Bara af reynslu hef ég tekið eftir því að það er oft auðveldara að segjast heita Thomas í stað Tómas og að fá að skrifa Guðmundsson í stað þess að segja það. Hinsvegar krefjast allir sem ég hef kynnst og talað við að ég segi Tómas í stað Thomas og eru dauðspennt að fá að heyra hvernig ég ber fram eftirnafnið mitt. Þetta hefur reynst mjög skemmtilegt fyrir mig og held ég að þetta sé bara brennandi áhugi nemenda í þekkingu aðra en þeir eru akkúrat að læra. Það í bland við að Montréal er mjög alþjóðleg borg. Það er eins og ég sé í einhverjum hræringi af menningu þar sem að Evrópubúum, Asíubúum, Austur-Evrópubúum, Bandaríkjabúum, Afríkubúum og SuðurAmeríkubúum sé blandað saman við þessa þjóð sem er Kanadabúar. Það er rosalegt alveg hreint.
Já, ég ætlaði að reyna koma með smá samanburð á þessum tvem stöðum. Núna líður mér þannig að ég hata Ísland og elska Kanada en það er án efa bara tímabundin tilfinning þar sem jú, Ísland er ávallt best. Þetta á eftir að breytast í sumar. En já, hér mun koma mini-færsla og svo “þýðing” á henni yfir á að hefði ég verið heima.
Kanada:
Vaknaði í morgun og svaf aðeins lengur af því ég þarf ekki að mæta í tíma fyrr en 3. Fékk mér svo samloku og banana og skaust út í ræktina, kom svo aftur heim og náði í skóladótið. Skaust í tíma og kom svo aftur til að taka til og elda mér kvöldmat. Hékk aðeins í tölvunni og horfði svo á sjónvarpið um kvöldið. Alveg ótrúlegt að þurfa velja milli sjónvarpsstöðva, Futurama, American Gladiator eða Robot Chicken, horfi út og sé að snjókoman sem var byrjuð þegar ég vaknaði í morgun upp úr 10 er ennþá í gangi. Fallegi jólasnjór.
Ísland:
Vaknaði í morgun og þurfti að hlaupa á eftir strætó, enn og aftur. Það var reyndar falleg snjókoma í morgun en það eina sem ég hugsaði var að þetta verður farið eftir 20mín. til 2 daga. Eftir tíma fór ég aðeins í PlayStation með strákunum niðrí Nörd, ég er ennþá sá allra besti ProEvolutionSoccer spilari þarna niðri. *Yawn*. Kom heim og fékk yndislega mat hjá mömmu áður en ég fór og hitti kærustuna mína og við horfðum á … loftið af því við gátum ekki ákveðið okkur hvaða bíómynd/sjónvarpsþátt við vildum horfa á.
Já, svona er munurinn ef þið getið spottað hann. Ég tók eftir því að þegar maður er að telja niður að einhverju ákveðnu þá líður tíminn hægt. Ef maður leyfir tímanum að líða og reynir frekar að einbeita sér að því sem er að gerast í kringum sig á þá og þeirri mínútunni þá mun tíminn líða hraðar. Af hverju? Jú af því að þá er maður með þá hugmynd í kollinum að það sé svo og svo langt í að einhver hlutur sé að gerast. Ef maður er sífellt að uppfæra það hversu langt er í hlutinn þá finnst manni tíminn aldrei líða. Það er ekki fyrr en maður stoppar og hugsar, “Nei, það eru ekki tveir dagar þangað til ég á að skila ritgerðinni heldur 1 dagur…” að maður hugsar “… shit hvað tíminn hlíður hratt.”
Æti megin ástæðan fyrir því að ég hata Ísland núna er af því að allt sem ég hef byrjað að þykja vænt um og elska síðastliðin nokkur ár er þar. Ekki hjá mér, heldur á Íslandi. Það er það eina. Nei afsakið, íslenska vatnið er heldur ekki hér. En það er reyndar hluti af því sem ég hef elskað lengi. Ég vantar íslenskt vatnur til að tala réttur. Alveg yndislegt hvað þessi elska (fartölvan mín) er orðinn slöpp, ég skrifa svo hratt að ég get í raun og veru talið upp á þrjátíu áður en textinn birtist. Þegar ég er að skrifa þetta þá er nýjasta orðið sem ég sé er “raun”. Pælið í því.
Jæja nú kveð ég. Áskorun vikunar, finndu þér eitthvað nýtt til að elska.
2 responses so far ↓
1 Þórdís // Jan 25, 2008 at 1:45 am
Það kemur nú fyrir að við horfum á eitthvað annað en loftið
2 wildrabbit // Jan 26, 2008 at 3:34 am
Já, eitthvað sem mér líkar vel við, eða þér líkar vel við, eða hvort annað. En að segja það hljómar svolítið leiðinlega og eða klisjukent, svo ég sleppti því. En já okkur tekst stundum að horfa á eitthvað annað en loftið
Leave a Comment