Jáh. Smá hængur þar á. Ávallt lærir maður eitthvað nýtt. Í dag, réttara sagt í morgun ætlaði ég að fljúga til Flórída til að hitta faðir minn og fjölskyldu og eyða páskunum í hitanum í Flórída. Nú, ég pakkaði í gærkvöldi og var að til klukkan 1 í nótt. Þið munið að skólinn hjá mér endar klukkan 11 á kvöldin á miðvikudögum. Svo kemst ég upp í rúm, dauðhræddur að vakna ekki við vekjaraklukkuna sem átti að hringja þrisvar sinnum. Ég vakna við þriðju hringingu og klæði mig og athuga hvort ég sé með allt og fer að ná í leigubíl. Svo spjalla ég við leigubílastjórann alla leið og hann er víst læknir, 10 ára nám í Indlandi að ég held, full útskrifaður læknir. Að keyra leigubíl. Í Kanada. Hann er að reyna komast til bandaríkjana og vinna fyrir mikla peninga.
Nú svo liggur leiðin út í flugvél og heldur betur er ég spenntur en samt rólegur. Svo sé ég snjó á vængjunum og hugsa hvort þeir muni fljúga með það, 10-20 mínútna seinkunn á fluginu og það er í fínu lagi og svo kemur að því að við förum að þvo snjóin af. Þar lendum við í gífurlegri biðröð og svo stoppa allir af því að samskiptin í Boston duttu út. Svo fara allir aftur af stað 5 mínútum síðar. Jæja, vonandi ekki of mikil seinkun. Ég sef mest allt flugið. Lendi 10 mínútum fyrir brottför á fluginu til Orlando og hleyp hátt á annan kílómeter til að ná þessu blessaða flugu. Það er búið að gefa upp sætin mín og loka flugvélinni. Konan segir mér svo að ég sé kominn inn í 14:30 flugið og ég þurfi að fara að tala við Service Center eða þjónustuborð.
Nú byrjar fjörið. Ég kemst ekki með í flugið mitt, en átti að komast í flugið og taskan mín var annaðhvort í fyrri vélinni eða seinni vélinni. Frábært, taskan mín í Orlando, ég í Cleveland og ekki viss hvert ég á að snúa mér. Ég tala við þær á þjónustuborðinu og já góðan daginn, ég var víst kominn með nýtt sæti í hálf þrjú vélinni, eftir TVO daga. Hún leiðréttir þetta og setur mig á standby fyrir 14:30 flugið í dag. Ég er númer 4. Ég spyr hvort að hún geti sent mig til Houston, Detroit, einhvers staðar í Flórida, Georgia, Alabama, Texas, Mississippi. Allt. Upp. Bókað. Yfir bókað meira segja, eitt flug til Flórída er með 19 manns á biðlista. Nú, á eftir mér í röðinni er fólk sem er frekar gamalt og á pantaða siglingu frá Fort Lauderdale á morgun. Það var engin leið möguleg fyrir þau að komast á næsta sólahring þangað. Það var hrikalega leiðinlegt. En jæja, ég er að bíða eftir einhverjum fréttum hvort ég eigi eftir að komast til Orlando í dag, eða á Laugardaginn eða hvort ég fljúgi bara til baka til Montreal. Maður verður bara að vera rólegur, sjarmerandi og ákveðinn og reyna fá sínu fram. Úff, þetta er ekki minn dagur.
Cleveland … rocks … not so much … nah.
2 responses so far ↓
1 Höddi // Mar 20, 2008 at 3:28 pm
Voandi kemstu á áfangastað
… nema þú endir eins og gaurinn í The Terminal
2 Tómas Guðmundsson // Mar 20, 2008 at 7:04 pm
Góðar fréttir. Fékk sæti um borð klukkan 15:30 og lendi 18:00 í orlando woohoo.
Leave a Comment