Jáh? Hvar ert þú. Mér finnst ég vera orðinn svo fullorðinn. Það eru svo margir sem ég þekki núna út um allt. Kærastan í útlöndum, bróðirinn á útlöndum og svo á ég núna fullt af vinum í útlandi. Aðallega Kanada en samt. Það er cool. Núna er ég að skrifa fyrsta tölvuleikinn minn. Fyrir utan þann sem ég skrifaði þegar ég fór á forritunarnámskeið þegar ég var 12 ára minnir mig. Það var fyndinn leikur, fannst mér þá. Af því að ég var 12 ára, þá skrifaði ég pirrandi forrit, sem mér fannst vera fyndið og skírði það leik. Kjartan vinur minn var með mér í þessu minnir mig. Það sem þetta forrit gerði var að þú smelltir á takka sem sagði “Smelltu á mig”. Þegar smellt var á hann þá opnaðist geisladrifið, og þegar þú ætlaðir að ýta aftur á takkan, sem núna var með textanum “Loka geisladrifi”. Þá hreyfðist hann á einhvern annan stað í forritinu. Þetta fannst okkur kumpánum oboðslega fyndið. Nú þegar ég er orðin aðeins aldrei myndi ég breyta þessu forriti. Ójá, ég er ekki svona barnalegur ennþá. Ég myndi breyta því þannig aðegar þú myndir slökkva á forritinu væri undirforrit sem þú myndir ekki sjá ennþá í gangi, sem myndi opna og loka geisladrifinu endalaust. Þannig að þó þú slökkvir á forritinu þá mun tölvan ekki hætta að opna og loka geisladrifinu. HAH, svo segir fólk að ég sé barnalegur. Pffft.
Ég ákvað að koma með eina aðra færsluna þar sem ég sting upp á enn annari tónlist. Þetta er nú ekkert nýtt en skemmtilegt að hlust á samt sem áður. The Fiery Furnaces : Tropical Iceland.
Þetta finnst mér æðislegt lag. Svo vil ég endilega benda fólki á Of Montreal ef það vill hrista bossann fram eftir kvöldum. Nú held ég að það sé kominn tími á smá þvott eða lærdóm. Fer eftir því hvoru ég nenni fyrst. Ég vil einnig minnast á góðu hlutina, því ef ég man rétt, þá hef ég verið að kvarta undan kuldanum hérna í Montreal heillengi. Núna er komin 10-15 stiga hiti og lýtur út fyrir að vera þannig þangað til ég kem heim. Ekki alslæmt það. Lífið, getur verið, æði. Stundum. Vona að það sem oftast hjá þér.
2 responses so far ↓
1 Höddi // Apr 9, 2008 at 9:29 am
Lag…límt… á heila
2 Lárkinn // Apr 9, 2008 at 10:20 pm
jamm… skemmtilegt lag! og eins og Höddi segir límist það vel
Já Tommi minn, þú hefur mikið þroskast síðan þú skrifaðir þinn fyrsta tölvuleik… gott að maður sér að þú ert samt sama barnið alltaf
Leave a Comment