Jáh, hvar er húfan mín? Ég vil tilkynna ykkur það að ég er nú orðinn formaður nemendafélags tölvunarfræði og hugbúnaðarverkfræðinema við háskóla íslands. NÖRD. Helsta baráttumál mitt var að félagið myndi skrá sig í HFFSHAOLN. Eða Hagsmunasamtök Fyrir Félög Sem Hafa Allt Of Langt Nafn. Og bjór, Nördar elska bjór. Eftir einungis 11 daga, þá hef ég tækifæri á að faðma alla nörda á íslandi. Ekki það að ég muni gera það, en sumir nördar munu fá faðmlag, aðrir fá kannski “hæ fæv” slap á bossann. Þegar kærastan mín er ekki að horfa.
Já, þetta eru skrítin tímamót hjá mér núna. Aðallega af því að ég kalla Ísland ennþá “heima”. Bróðir minn kann að kalla sjálft Ísland “heima” en ég er ennþá með heimilið mitt heima á Íslandi. Þess vegna er ég með ofur heimþrá. Á sama tíma, og hlustið nú og vorkennið, af því ég á svo mikið bágt. Jesús, það ætti að stofna til Amnesty International sjóð fyrir mig. Já, á sama tíma er ég að reyna njóta tímans sem ég á eftir hérna með því að baða mig í þeirri yndislegu borg sem er Montreal. Það er mun auðveldara núna miðað við í Janúar þar sem núna er veðurspáin fyrir næstu daga bara 10-20 stiga hiti. Ég veit hvað þú ert að hugsa, “Hvernig höndlar hann þetta allt saman” og satt best að segja þá veit ég ekki. Þetta er allaveganna ekki alveg að drepa mig, en já góðir tímar samt sem áður.
Já, þú ógeðslega töff. Montreal er ekki sérstaklega dýr borg miðað við Kanada og Bandaríkin að mínu mati, en ódýr miðað við Ísland. Svo þú, já þú, ég mæli með viku frí til Montreal. Það er bara æði. Getið hringt í Heimsferðir (þetta er ekki auglýsing frá þeim), held þeir séu með bein flug á sumrin til Montreal fyrir, úpps, ætlaði að segja 500 dollara, svona er maður orðinn slæmu vanur (já dollarinn er slæmur), 30 þúsund krónur. Nú ætla ég halda áfram að læra.
Ert þú búinn að faðma svía nýlega ?
0 responses so far ↓
There are no comments yet...Kick things off by filling out the form below.
Leave a Comment