wildrabbit.org

The home of Captain Weirdo.

wildrabbit.org header image 2

Minnisnotkun.

May 21st, 2008 · 1 Comment

Ég var í kanada. Ég var í skóla. Ég lærði ýmsilegt um Kristján og Óla. Smá grín, þetta bara hljómaði vel, þekki ekki Kristján né Óla. Allaveganna, ég lærði ýmislegt um stýrikerfi. Þar af leiðandi aðeins um hvernig tölvan þín notar og dreifir minni.  Eitt sem ég veit er að hvert forrit ætti varla að nota, í mesta lagi 100-200 MB, og það er svona í það allra minnsta. Þú ert vanur/vön því að nota hugsanlega internetið, póstinn, tónlistarforrit, spjallforrit og hugsanlega eitt til tvö í viðbót. Ef öll þau myndu nota 200MB (sem er alveg fáranlegt), þá væriru að nota 1.2 GB af minni. Gefið að stýrikerfið þitt noti eitthvað líka, þá áttu ekki mikið eftir ef þú ert með 2GB í minni. Margir eru þó einungis með 1GB í minni, og það væri þá sprungið.

Núna er ég í vinnunni, og hef verið með Firefox opinn lengi, en ég tek það fram að í núna er ég með 10 forrit í gangi. Í firefox er ég með 11 “tabs” opna, þar af 4 sem eru notaðir í að hlusta á Myspace tónlist. Mér firefox vera örlítið hægur og tók ég eftir því er ég skoðaði Task Manager að ég … tjah, bara leyfa ykkur að skoða. Heppinn að ég er með 2GB í minni.

Minnis notkun á tölvunni minni.

Þetta fannst mér einkarlega fyndið að hann væri kominn í heilt GÍGABÆT. Kjánalegt. Endurræsi honum núna og ef þarf, WindowsXP líka. Drasl stýrikerfi.

Tags: Blogroll · Hugarórar

1 response so far ↓

  • 1 Höddi // May 26, 2008 at 11:44 am

    Þetta er aaaðeins betra í nýju betunni virðist vera… finnst samt firefox frekar gráðugt

Leave a Comment