Jáh, við verðum nú að standa saman. Við gerðum það mjög vel um daginn þegar Íslendingum tókst að safna 35 milljónum fyrir brjóstakrabbameini. Mér finnst það einstaklega frábært, að Íslendingar, sem almennt eru frekar dónalegir og eigingjarnir (ég þar með talinn að sjálfssögðu, þar sem ég er nú Íslendingur). 35 milljónir eiga að hjálpa sjúkrahúsum við að kaupa inn tækjabúnað sem á auðveldara með að skynja krabbamein sem er nýbúið að myndast. Það er svo innilega frábært að ég vona að sem flestir fái að fara í þetta tæki sem oftast svo sem flestir sem greinast geta fjarlægt það sem fyrst svo það verði þeim ekki að bana. EN, það eru tveir punktar sem ég vil minnast á.
Ég geri mér grein fyrir því að til eru margar tegundir af krabbameini og það er ekki til ein og verður örugglega ekki til ein sprauta sem einfaldlega “bara lagar krabba”. En samhliða allri athyglinni sem brjóstakrabbamein fær vildi ég að meiri meðvitun um almennt krabbamein eða hið skaðlegasta væri vakin. Nú, hvernig er hægt að segja hið skaðlegasta ? Eru þau ekki öll manndrepandi ef þau greinast of seint? Ég veit það ekki, ég er ekki læknir né hef reynslu af krabbameini en tölfræðilega séð, þá er brjóstakrabbamein, af þessum þekktustu krabbameinum, sem veldur minnstum dauðföllum. Ég ætla vona það sé útaf allri athygli sem það hefur fengið í gegnum árin, meðvitund hjá mörgum konum (sem eru líklegri til að fá brjóstakrabbamein) um að fara í skoðun og athuga þetta allt saman og sækja í meðferð. Hinsvegar, samkvæmt alþjóða heilbrigðisstofnuninni, þá er krabbamein leiðandi orsök dauðsfalla í heiminum. Í kringum 58 milljónir látast árlega, þar af 7.6 úr krabbameini, eða 13%. Ég er að vona það að það fólk sem greinist með brjóstakrabbamein sé bara það almennt duglegra að láta athuga svona hluti og greindara af því að brjóstakrabbamein telur fyrir 502þúsund dauðsföll árlega. Lungnakrabbamein telur fyrir 1.3 milljónir (17% af öllum krabba) og saman telja lungna-, lifra-, ristil- og magakrabbamein fyrir 3.6 milljónir (47% af öllum krabba). Gefið, að stór hluti orsakana vegna lungnakrabbameins eru reykingar og 40% allra krabbameina er hægt að koma í veg fyrir með breyttu líferni, svo sem hollara fæði, betri hreyfingu og sleppa reykingum, en það breytir því ekki, þrátt fyrir að mínu mati að brjóstakrabbamein sé mest áberandi í mínu samfélagi, þá er það ekki það algengasta í heiminum. Ég vona að þessi umræða um brjóstakrabbamein skili sér með öðrum krabbameinum.
Hinn puntkurinn minn er sá að fyrir fáeinum vikum síðan, riðu yfir skelfilegir jarðskjálftar í kringum Selfoss og Hveragerði. Vissulega var þetta söfnunarátak undirbúið löngu áður en jarðskjálftarnir áttu sér stað, en ég vil samt minnast á þá. Í dag er kaupmáttur að lækka, þjóðarkjör landsmanna að lækka og hagfræði doktorar við Háskóla Íslands biðja landsmenn vinsamlegast um að spara eins mikið og hægt er næstu ár svo að allt fari ekki til fjandans. Hvar stend ég þá ? Hvar stendur þú þá ? Hvar standa lán allra landsmanna sem maður hefur einungis heyrt um að sé að hækka og hækka og hækka. Ég las það í fréttunum um daginn að uppbygging fyrir þá einstaklinga sem urðu hvað verst úr skjálftanum hefði stöðvað vegna verðbólgu. Það var samt enginn að tala um það, það bara gerðist og allir eru búnir að gleyma því. Á sama tíma ná Íslendingar að safna saman 35 milljónum til brjóstakrabbameins, sem er vissulega mjög, mjög frábært. Hvernig væri að standa bak við bræðrum okkar og systrum í Selfossi ? Söfnum fyrir þau. Hvað er ríkið til dæmis að gera? Ég veit það ekki nákvæmlega í sambandi við Hvergerðinga en ég veit að það er talið að í kringum 350 milljónir fari í að senda Íslendinga í öryggisráðið. Hvar í ósköpunum var þjóðaratkvæði um það ? Ég vil ekki að við förum í Öryggisráðið fyrir allan þennan pening (og hugsanlega mun mun meira, Tyrkir gefa upp að þeir muni eyða í kringum 3,7 milljörðum til að komast í Öryggisráðið) bara svo að það verði ekki hlustað á okkur. Við erum 300 þúsund manns. Það eru 4 * 10 í -7 veldi. Af hverju ættum við að hafa atkvæðisrétt í Öryggisráði? Hvað með styrki Ingibjargar sem eru vissulega að fara í frábært málefni, einungis til Afríku hefur framlag íslenska ríkisins hækkað um 9 milljónir. Árið 2003 voru 8 milljónir veittar til styrktar UNIFEM, í fyrra 47,4milljónir, í ár 87,5 milljónir. Þetta er svo yndislegt að við séum svona gjafmild en, eigum við efni á því ? Eigum við efni á því að láta Íslendinga úti frjósa og uppbyggingu eftir jarðskjálfta hjaðna? Ég vildi óska þess að við gætum gert bæði, en við eigum bara svo mikið af peningum, sem verðgildi þeirra fer sífellt rýrnandi.
Enn og aftur vil ég minna á að þetta eru allt frábær framlög til alls, en við þurfum líka að spyra okkur sjálf hvort við forgangsröðum rétt? Er náunginn mikilvægari en við sjálf? Ég tel að með þessum orðum hef ég sagt það sem enginn þorir að segja, eða gagnrýna. Er ég hálfviti fyrir að gagnrýna góðgerðarmál og góð framlög, eða er ég snjall að taka eftir því að góðgerðarmálunum er ekki beint í rétta átt? Endilega láttu mig vita um þá góðu hluti sem Íslendingar gera fyrir Íslendinga. Ég veit um eitt, fyrrverandi Verzlunarskólanemar, (Hreiðar már, Björgólfsfeðgar, Jón Ásgeir og fleirri) og núverandi auðjöfrar hafa gáfu Verzlunarskólanemum 50 milljónir króna (fyrir 3 árum) og voru þeir veittir til fólks á öllum skólaárum. Mér finnst það æðislegt.
Hér hægt að styrkja fólk eftir Suðurlandsskjálftann:
http://redcross.lausn.is/Apps/WebObjects/RedCross.woa/wa/dp?id=1002397
Heimlidir
Kostnaður við öryggisráð: http://eyjan.is/blog/2008/05/03/kotnadur-vegna-frambods-i-oryggisrad-sth-groflega-vanmetinn/
WHO - Cancer :
http://www.who.int/mediacentre/factsheets/fs297/en/index.html
UNIFEM - Ársskýrsla 2007:
http://www.unifem.is/unifem/images/stories/unifem_rsskrsla_07.pdf
1 response so far ↓
1 Berglind // Jul 3, 2008 at 9:21 am
Ég er reyndar alveg sammála þér með að finnast við vera að eyða peningum í óþarfa með því að vera í þessu öryggisráði, en mér finnst samt sjálfsagt mál að við Íslendingar séum aktív í framlögum til þróunarlanda og Unifem og þess háttar. Þótt það sé verðbólga hérna á Íslandi og okkur finnst við eiga voða bágt höfum við það samt miklu betra en 90% manns í heiminum!! Mér finnst ekki hægt að bera saman þá kreppu að geta ekki farið út að borða og kaupa sér tölvuleiki við að hafa ekki hreint vatn og deyja af næringaskorti. Svo var náttla mikið tjón af jarðskjálftunum en fá ekki flest allir mest allt borgað af tryggingunum, nú þegar eru tryggingarnar búnar að greiða út 600 milljónir í tjónabætur.
Leave a Comment