wildrabbit.org

The home of Captain Weirdo.

wildrabbit.org header image 2

Update - Framtíðarplön.

June 11th, 2008 · 2 Comments

Búið að vera mikið að gera hjá mér. En ég er einmitt mjög óduglegur að blogga upp á síðkastið enda hef ég verið heima á Íslandi og allir sem hafa haft áhuga hafa fengið að frétta af mér. Hinsvegar er ég kannski þekktur fyrir að tilbúinn með hluti. Upp á síðkastið hef ég verið að plana næsta ár. Of snemmt? Tjah, betra að vera örugger með þetta en ég er að undirbúa það á þann hátt að vera tilbúinn með umsóknir í skóla. Í suma skóla þarf að senda inn umsókn fyrir jól, aðrir fyrir maí. Þannig að það er best að vera bara tilbúinn með umsóknir í marga skóla. Ég hef ákveðið að skjóta á allt sviðið, allt frá skólum sem eru mjög líklegir að samþykkja mig og geta veitt meira spennandi menntun er í boð á Ísland yfir í þá skóla sem væri einfaldlega ótrúlega gaman og heiður að komast inn í. Hér er listinn yfir skóla sem ég ætla sækja um, hingað til.

  • Oxford (GB)
  • Edinburgh (GB)
  • Chalmers (SE)
  • Royal Institute of Technology (SE)
  • Linkoping University (SE)
  • Norwegian University of Science and Technology (NO)
  • University of Oslo (NO)
  • Southampton University (GB)
  • Imperial College of London (GB)

Eins og þið sjáið þá er þetta allt í Evrópu en ég veit ekki hvort ég vil fara til bandaríkjanna nema þá fólk myndi borga mér fyrir að fara (styrkur). Mjög dýrt að læra þar. Samkvæmt mínum útreikningum er dýrasta námsárið í London fyrir 500 þúsund á ári, sem er jú jafn dýrt og í HR. Er ódýrara að lifa í Bretlandi? Veit ekki, en já, ef þið vitið um fleirri góða háskóla í Evrópu (bretlandi og norðurlöndunum fyrir utan Danmörk) þá megið endilega senda mér póst. Svo, vonandi ekki þangað til ég flyt næst til útlanda þá bara bíðið róleg af því ég er ekki mikið að blogga núna.

Tags: Blogroll · Hugarórar

2 responses so far ↓

  • 1 Snorri Björn // Jun 12, 2008 at 12:08 pm

    Tommi minn, þetta er allt mjög spennandi kostir og fín lönd að vera í (lifa og vera). Hins vegar langar mig að spurja þig hvernig lönd eins og Þýskaland, Sviss og Frakkland eru þegar kemur að taka M.S.-gráðu í hugbúnaðarverkfræði? Ertu eitthvað búinn að tékka á því?

    Kv. Snúlli ,,

  • 2 Tómas Guðmundsson // Jun 23, 2008 at 10:27 pm

    Tjah, ég er bara ekki nógu hress með að fara í meistaranám án þess að kunna neitt í tungumálinu í því landi. Ég væri kannski til í það ef ég kynni frönsku eða þýsku eða gæfi mér eitt ár til að læra það fyrst en ég er bara ekki spenntur fyrir því. Annars helling af góðum skólum í öllum þessu löndum.

Leave a Comment