Maður er orðinn nett þreyttur á öllu þessu redd-tali. Þetta reddast þetta reddast. Fólk veit það ekki en nú hefur sprottið upp mikil umræða hvað er hægt að gera fyrir minni peninga en áður ? Fólk hamstraði vín við 5-25% hækkun á áfengi um daginn. Hvað ef þetta vín situr svo í kjallaranum í 3 ár ? Manst síðan eftir því og fattar já, gott að geyma það fyrir næsta afmæli. Svo sem ekki búin að tapa peningnum, en þú eyddir honum að óþörfu. Betra bara að kaupa næstu vínflösku þegar þú þarft á henni að halda. Ég hef hinsvegar tekið eftir því á mínum vinahópi að það er mun minna farið niðrí bæ, vegna kostnaðar. Jú það kostar alveg heilan helling að taka til dæmis leigubíl heim, fyrir utan hátt verð á áfengi á bar.
Hér höfum við svo mynd af mér þegar ég var með góðu fólki að spila gott spil. Þetta eru skemmtilegustu spil sem ég hef spilað og má þá nefna að þau heita Twilight Imperium og taka oftast í kringum 12-14 tíma. Gott að spila þau í jólafríi eða um helgar. Þetta hef ég verið að spila síðastliðin 3 ár jafnvel og hlæ að því þegar fólk talar um að taka fram gömlu góðu spilin til að nýta í kreppunni. Þó að spil séu ódýr leið til að skemmta sér þá þarf ekki kreppu (allaveganna ekki fyrir mig) til þess að læra að njóta þeirra. Ég bið frekar fólk bara um að fara varlega með peningana í svona kreppu og hugsa um hvað það er að eyða í.
0 Responses
Stay in touch with the conversation, subscribe to the RSS feed for comments on this post.