Af hverju tengjum við orðið glaðningur einungis við gjafir ? Veit ekki. Mér finnst samt rosalega gaman að gleðja annað fólk. Að veita öðrum glaðning gerir mér glaðan dag. Það getur verið einstaklega gaman að gleðja kærustuna mína, það endar alltaf vel. Mér finnst einnig mjög gaman að gleðja fjölskylduna mína og get ég gert það á marga vegu. Hún er svo yndisleg að stundum er bara nóg fyrir mig að mæta. En fjölskyldan mín var svo góð við mig að gefa mér þá gjöf að læra á píanó (píanókennslu). Í dag get ég endurborgað henni og fleirri með píanóleik, hún kann sko að meta það. Þá einna helst hann afi minn. Afi minn er frábær gaur. Einn daginn sagði hann við mig “Tómas minn, ég heyrði hérna ofboðslega fallegt lag í útvarpinu, helduru að þú getir ekki fundið nóturnar og reynt að spila það fyrir mig.” Síðan þá hef ég rembst við að reyna að spila það en það er mjög mjög erfitt. Þetta er impromptu eftir Schubert (gamli mundi það náttúrulega) Op. 142 (D935) og er byggt upp með upphafskafla og svo þema og tilbreytingum (variationum) og endar með lokakaflanum. Nú vil ég biðja þig um að taka þér 10 mínútur og hlusta hér á tilbreytingarnar af upptöku frá 1938, verðið að afsaka suðið. Mæli með að hækka í græunum, slökkva á skjánum og reyna njóta þessa, þetta er þvílík snilld. Að mínu mati þá er Schubert með bestu tónskáldum allra tíma.
Dagatal
| M | T | W | T | F | S | S |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « Jan | ||||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 | |||
Síðustu athugasemdir
- Tomage le Fromage on Skiptar skoðanir
- gsj on Archives
- Haukur on Tölvuleikir.
Síðustu póstar
Flokkar
- Blogroll (59)
- Hugarórar (32)
- Skóli (6)
- Tilkynningar (2)
0 Responses
Stay in touch with the conversation, subscribe to the RSS feed for comments on this post.