Skip to content


Jólaauglýsingar

Vildi bara koma hérna smá á framfæri. Gleði mín yfir því hversu “seint” Íslendingar eru að auglýsa fyrir jólin. Neyslusemi okkar, eins og augljóslega hefur komið í ljós, hefur farið fram úr öllum eðlilegum mörkum.  Þegar maður heyrir um krakka sem eru að fá iPod í skóinn þá hugsar maður, er þetta nú ekki full langt gengið ? Að fá í skóinn átti að vera skemmtilegur glaðningur til að byggja upp spennu fyrir jólin, svona eins og sleikjó eða súkkulaði stykki. Eða mandarína ? Ekki mörg tugi þúsunda gjafir. Geðveiki.

 

Þess vegna er ég glaður í dag, að sjá byrjun jólaauglýsinga vera mánuði seinna en síðasta ár. Auðvitað er það í ljósi nýliðna atburða síðastliðina mánuða og erfitt þegar svona mikill skellur hefur lent á þjóðinni, en mér finnst það dásamlegt að búðarrekendur hafa beðið með jólaauglýsingarnar svona seint. Þetta byggir einfaldlega bara upp stress og spennu fyrir jólunum og þeim kostnaði sem því fylgir. Samt hefði ég viljað fá jólaauglýsingar bara í Desember, ekki fyrr. En ég vil hvetja fólk sem les þetta að hunsa jólaauglýsingar og jólaeftirvæntingar. Það eru erfiðir tímar og þá getum við alveg eins sleppt því að gefa öllum sem við þekkjum jólagjafir. Skrifum frekar falleg og hugreystandi jólakort. Ég held ég hafi sagt það áður, en ég skal segja það aftur. Fyrir mér er bara nóg að fá að hitta það fólk sem mér er mjög kært og hefur ákveðið að eyða tíma sínum erlendis. Þetta yndislega fólk, kakóbolli og góð jólabíómynd er það eina sem ég þarf.

 

Lifið heil og farið vel með ykkur, góðar stundir.

Posted in Blogroll.


3 Responses

Stay in touch with the conversation, subscribe to the RSS feed for comments on this post.

  1. 50 cent says

    Væl.
    Nei, djók. Ég gæti varla verið meira sammála þér villta kanínan mín. iPod í skóinn er algerlega út í hróa hött. Ef það væru ekki jólin myndi ég leita viðkomandi uppi og kasta í hann skó (djók).
    Neinei, hann vildi eflaust bara gott.
    Jæja, lifið í lukku en ekki krukku og gleðilegt nýtt ár Tommi minn ef ég sé þig ekki around á gamlársdag ;)

  2. Björgvin Ragnarsson says

    áfram kreppan (y)

  3. eyrun says

    ja mer fannst skemmtilegast ad fa happathrennu, tha var alltaf moguleikinn a meiru ef madur nennti ekki ad bida til adfangadagskvolds. mundi enn setja minn sko ut i glugga ef eg vaeri a landinu enda trui eg enn a jolasveininn :)

    aetlardu svo ekki ad hitta mig eftir 15. des og fyrir 5. jan tommi minn kikja ut i kaffibolla og smakokur eda e-d? xx



Some HTML is OK

or, reply to this post via trackback.