Ég á mjög erfitt með að játa mig sigraðan. Sem gamall keppnismaður þá ég mjög erfitt að játa mig sigraðan. Einnig veit ég ekki hvaðan það kemur en oft tel ég mig vera gáfaðari en aðrir. Þvílíkir fordómar sem hverfa þó um leið og annar einstaklingur hefur sannað vitsmunalega yfirburði yfir mig í tangó vitsmunahyggjunar. Hvað sem það nú þýðir. Þetta finnst mér einstaklega slæmt og er ég að reyna bæta mig. Þetta getur dregið niður skemmtanagildi viðræðna með rifrildum. Þar sem tveir einstaklingar þræta út í hið óendanlega með þvílíkri sannfæringu um að hann hafi rétt fyrir sér.
Það er kannski erfitt að komast að niðurstöðu um hvor sé betri söngkona, Britney Spears eða Christina Aguilera, en svoleiðis þrætingur á aldrei rétt á sér að mínu mati. En með tilkomu netsins og stórra opina verkefna eins og Google og Wikipedia er auðvelt að styðjast við óháðan aðila sem kastar sínum fullyrðingum á alnetið. Það er hinsvegar ekkert annað en “peer-review” eða jafninga gagnrýni sem vottar verðleika og sannindi þeirra fullyrðinga. Hinsvegar ef Wikipedia segir mér að flatarmál þríhyrnings sé hæð deilt með tvemur sinnum grunnlína, þá skal ég alveg trúa því. Það jafnast á við það sem mér hefur verið kennt. Rifrildi af þessum toga eru skemmtileg að mínu mati, þarna er hægt að rökræða fram og aftur um hvor sé rétt, mín afstaða eða þín. Þá verður annar aðilinn að játa sig sigraðan rétt og fyrir snjöllum skákleikmanni, eða þaulþjálfuðum bogmanni.
Það sem ég á hinsvegar erfitt með að kyngja eru fullyrðingar og staðhæfingar sem er kastað fram af reynslu. Ég hef alist þannig upp, af einhverjum ástæðum, að ég er alltaf tilbúinn að véfengja hvað sem er. Þegar óháður þriðji aðili/ar eru samþykkir því, þá reyni ég að játa mig sigraðan. En þegar einhver byggir rökræðu sína á skoðunum og “anecdotal evidence” eða sönnunargagn byggt á reynslu þá verður alltaf auðveldara að véfengja það. Þegar aðrir koma svo með svona rökræðingar þá er leiðinlegt þegar þeir neita að trúa því að það sé mjög auðvelt að véfengja þetta. Enda byggist þetta allt á reynslu. Dæmi gæti verið um að ljós á gatnamótum. Það er einhver sem hefur keyrt þau í þrjú ár. Hann krefst þess að þau fara alltaf eftir einhverju mynstri. Þetta er mjög auðsannað, það þarf bara að fylgjast með ljósunum í 24 klukkustundir og þá er hægt að sýna fram á sönnun með skoðunum. Hinsvegar er auðvelt að breyta ljósunum sem og auðvelt að álykta að þau skipti um mynstur á sólarhring (annað mynstur á nóttini en á dagin).
Ég hef líka reynt að laga hegðun mína með því að hlusta á fullyrðingar annara um málefni sem ég veit ekkert um. Ég reyni að þegja en ég bið þig vinur góður að taka eftir sagnorðinu reyna. Hvernig rífst / þrætir / rökræðir þú ? Var bara að pæla í þessu.
0 Responses
Stay in touch with the conversation, subscribe to the RSS feed for comments on this post.