Skip to content


Tölvuleikir.

Ég hef verið með tölvuleikjum alla mína tíð. Ég hef oft þurft að vernda þá fyrir tilstilli niðrandi viðhorfs af samfélaginu. Athugasemdir eins og “Það er ekki hollt að eyða svona miklum tíma í tölvuleikjum” eða “Viltu ekki fara út að leika þér” eða “Varstu að spila tölvuleiki á föstudagskvöldi, af hverju fórstu ekki að djamma” hef ég heyrt mjög oft. Það er reyndar rétt og á ekki við um tölvuleiki heldur allt saman, að óhóf er slæmt. Það meira segja lést ung kona í keppni um hver gæti drukkið sem mest vatn. Þetta var í útvarpsþætti í bandaríkjunum og hún drakk of mikið vatn og lést, ótrúlegt en satt, þið getið leitað að þessu á netinu.

Ég er búinn að vera lesa grein frá tímaritinu Edge um 15 helstu kosti við tölvuleiki. Þar er stiklað á stóru um áhrif tölvuleiki á mannveru. Tölvuleikir eru nefnilega merkilegur hlutur að mínu mati, en oft komið svo neikvætt fram við þá. Mér finnst ég oft þurfa að vernda áhugamál mitt með kjafti og klóm enn þann dag í dag. Þrátt fyrir Guitar Hero, Rock Band, Wii Sports og alla þessa leiki sem 70 – 80 milljónir manna eru að spila í dag. Til að fá nákvæma lýsingu mæli ég með að þú lesandi góður, taki þér 15 mínútur og lesir þessa grein.

En í stuttu máli, þá kemur þarna fram að tölvuleikir geta aukið samúð hjá fólki. Rannsókn frá Oxford gefur til kynna að Tetris getur hjálpað við stress eftir mikið álag (Post Traumatic Stress Disorder). Þeir geta tekið huga manns algerlega og hefur verið sýnt fram á að tölvuleikir lini þjáningar fórnarlamba eldsvoða. Læknar í Bretlandi eru að fara nota Wii Fit vigtina til þess að hjálpa fólki með gervifótleggi að jafna út þyngdardreifingu á líkama sem og í sjúkraþjálfun. Hasartölvuleikir geta aukið getu fólks til að framkvæma flókna hluti sem tengjast augnskilningi.

Svo er það gamla klisjan, handa og augna samhæfing. Ein rannsókn sýndi fram á að skurðlæknar gætu staðið sig betur þegar þeir voru búnir að æfa sig í tölvuleikjum sem krefjast samhæfingu handa og augna. Margir tölvuleikir í dag eru tól fyrir sköpun og hvetja notendur til að búa til sína hluti. Þetta getur hleypt ímyndunaraflinu af stað og ræktað listsköpun hjá einstaklingum. Tölvuleikir hafa líka hjálpað til við heilaheilsu, þ.e. aukið getu í að leysa vandamál og snarpa hugsun. Fjölspilunarleikir ýta undir skilning á mótherjanum. Félagslyndi, margir telja að tölvuleikir eru bara til að vera einn í tölvunni, en fleirri og fleirri leikir krefjast félaga ef ekki hóp fólks til að spila með sbr. Wii, Rock Band og fleirri partý leiki. Tölvuleikjavélar hjálpa líka til að reikna út sambrotun prótína til að komast nær lækningu fyrir Parkinson, Alzheimer, krabbameins og fleirri sjúkdóma. Og nú með tilkomu Wii Fit eru þeir að hvetja mann til að hreyfa sig.

Eftir allt þetta hljóma tölvuleikir í mínum eyrum mjög vel. Þeir gerðu það áður líka en það má ekki mistaka tölvuleiki fyrir hið heilaga gral. Það eru margir ókostir við tölvuleiki eins og tölvuleikjafíkn. Því miður hef ég ekki rannsóknir eða greinar úr blöðum sem benda á ókosti tölvuleikja, en þeir eru án efa til staðar.

Síðast en ekki síst, þá eru tölvuleikir skemmtilegir. Þeir blanda saman hugmyndinni um að skapa þinn eigin heim, upplifa myndbrot, heyra sögur og týna sér í ímynduðu heimi, rétt eins og þegar maður var krakki. Eins og greinin segir, af hverju þurfa tölvuleikjaspilendur að verja áhugamálið sitt mun meira en kvikmyndaáhugamaðurinn ? Af hverju eru kostir tölvuleikja að þeir séu skemmtilegir ekki nóg ? Af hverju þarf ég að skrifa svona blogg, eða blöð svona greinar til að réttláta tölvuleiki ?

Ég á vin, sem langar að vinna við að búa til tölvuleiki sem atvinnu. Móðir hans neitar þeirri tilhugun og styður hann ekki á þeim vettvangi af því henni finnst hann bara vera leika sér. Mér finnst það svona eins og að styðja ekki leikfangaverksmiðjur af því að þær eru bara að leika sér, eða kvikmyndagerðarmann af því hann er bara að leika sér, eða snjóbrettaframleiðanda af því að fara á snjóbretti er bara afþreying. Hvað er svona rangt við að framleiða tölvuleiki ?

Posted in Blogroll.


One Response

Stay in touch with the conversation, subscribe to the RSS feed for comments on this post.

  1. Haukur says

    Tommi, hvar er spaðasíðan?? Leikir eru kúl!



Some HTML is OK

or, reply to this post via trackback.