Skip to content


Bifreiðar Íslands.

Svona í ljósi ástands á efnahagi nú til dags er gaman að kíkja aftur til fortíðar og muna þá daga sem að fjölskyldur sættu sig við að hafa einn bíl. Einn bíl dugði til að koma krökkunum í skólan, foreldrunum í vinnuna og versla inn. Ég man þá daga. Þegar ég hugsa um það þá neyðir það líka fjölskyldur til að eyða meiri tíma saman, sem er alltaf jákvætt. Ég er að gera mér meir og meir grein fyrir því svona rétt eftir að stóri bró fór aftur til útlanda hvað það er gott að eyða tíma saman með fjölskyldu sinni.

En til að minnast á skemmtilega tölfræði um Íslendinga og neyslusemi þeirra þá er maður búinn að heyra ýmissar tölur, eins og það að Íslendingar séu með verslunarhúsnæði fyrir um 2.5 milljónir manna ( kringlan, smáralind, holtagarðar, korputorg, einnig nefnt krepputorg, laugavegurinn og lengi mætti telja áfram). Einnig fékk ég að heyra að það væru 800 bílar á hvert mannsbarn á Íslandi. Ég ákvað að skoða málin með gagnrýnum augum sjálfur og fletti upp hagtölum Íslendinga (www.hagstofa.is og www.us.is). Samkvæmt hagstofunni eru í kringum 667 bílar á hvert 1000 íbúa á Íslandi. Það er nú heldur mikið að mínu mati. Gefið að meðaltali að hver fjölskylda gæti verið 4 manna fjölskylda þá eru það 667 bílar á 250 fjölskyldur sem eru 2 og hálfur bíll á fjölskyldu. En samkvæmt fjölda bíla á Íslandi lok ársins 2007 og fjölda íbúa 1. Janúar 2008 þá fáum við hlutfallið 0.7676 eða í kringum 767 bílar á hverja 1000 manns. Það samsvarar aftur 3 bílum á fjölskyldu, að meðaltali.

Nú gæti komið fyrir einhverjum að þeir hafi ekki efni á að eiga tvo eða þrjá bíla á fjölskyldu. Þessir einstaklingar gætu orðið einstaklega pirraðir að þurfa að taka strætó í stað þægilegs bílsins síns eða eitthvað þess háttar. Á meðan er ég bara sáttur með minn vanagang, ódýr strætó (réttara sagt ókeypis) heldur mér gangandi. Annars var ég að fá helling af myndum og mun bæta þeim við í bloggin mín til að reyna krydda þetta aðeins meir.

Posted in Blogroll.


Hverjum þykir sinn fugl fagur.

Jahá. Öfginn getur verið manninum til skammar. Það versta við öfgafullar manneskjur er að þeir sjálfir geta ekki séð hversu öfgafullir þeir eru. Það er ekkert mál að finna dæmi um öfga en mér finnst auðveldast að lýta til bandaríkjana. Þar gleymist fólk í hvað eru mikilvæg gildi og sér ekki hverju það þarf að vinna að og þess í stað heldur blindandi áfram í að létta sig, strekkja sig, græða meira og þar fram eftir götunum. Hérna er mynd frá ARMS og þykir mér hún skondin, að fólk geti ekki leyft öðru fólki að ganga í garði af því það styður einn eða annan forsetaframbjóðandan. Og talandi um peningaeyðslu, Obama verður annaðhvort til staðar fram yfir Nóvember eða næstu 4 árin. Hvernig væri að breyta þessu úr OBAMA í DEMOCRATIC PARTY. Bandaríkjamenn.

En þeir segja nú að þetta sé Private Park, en samt sem áður… æh, ég veit ekki. Hér er eitt annað dæmi um konu sem fór frá heimili sínu til að lifa með annari fjölskyldu í 2 vikur, ég sá þennan þátt og fjölskyldan sem hún fór að lifa með var svona, hvað segir maður, stjörnuspekingar. Spáðu í afmælisdaga og þar fram eftir, en já hún var mjög kristin og að mínu mati þvílíkur öfgi, en hún hendir þarna í myndbandinu peningum upp á 10 þúsund dollara sem áttu að vera nýttir í að hjálpa dóttir hennar með nýfætt barn, hinni dóttur hennar með spangir og hjálpa manninum með húsið svo eitthvað fátt eitt sé nefnt. Þetta er rosalegt.

 

 

Posted in Blogroll.


Hvar er bjartsýnin?

Jæja. Íslendingar eru bestir í að vera bjartsýnir. Þetta reddast allt saman. Við erum redd þjóð. Það sem hefur farið örlítið í taugarnar á mér þegar atburðir síðastliðna daga hafa átt sér stað er talsháttur fólks. Það er allt eitthvað svo, vorkunnarfullt. Kannski er það bara mjög gott og blessað og eðlilegt en ég er orðinn svolítið þreyttur á því, sem og bjartsýninni. Það er alltaf verið að segja við mig, “Hugsaðu hvað þú hefur það gott, þú ert ekki með [ lán, myntkörfulán, bílalán ]” og svo framvegis. Gott og blessað, en ég bý heldur ekki við hungurskort eða út á götu. Þannig að ég er að velta því fyrir mér, af hverju erum við alltaf að bera okkur saman við þá sem hafa það verr en við? Það kalla ég meðalmennsku ásætti. Við verðum ekki frábær með því að sætta okkur við það sem við höfum. Af hverju spyrjum við ekki frekar, “Shit, pældu í hvað þú hefur það slæmt, þú átt ekki [ skuldlausa íbúð, glæsijeppa, lystisnekkju, einkaþotu, sumarhús á spáni]“. Með slíkum pælingum ættum við að geta híft okkur upp á næsta plan og orðið metnaðarfyllri til þess að standa okkur betur.

RANGT! Við eigum ekki að vera pæla í hvað aðrir  hafa það gott eða betra en við sjálf. Við eigum ekki að vera pæla í peningunum okkar, því nokkuð er víst að það eru allir sem lenda illa í því beint eða óbeint af svona fjármálafárviðri*. Við eigum að pæla í okkar nánustu vinum, ættingjum, aðstandendum, aðstæðum. Ég elska Þórdísi, Mömmu mína og Pabba, alla vini mína, fólkið í Hugbúnaðarverkfræði, fólkið í Tölvunarfræði, öll ættin mín er hið frábærasta fólk og þegar allt kemur til alls er það það sem skiptir máli. Þú gætir verið að hugsa með þér hversu svartsýnn ég er í þessari færslu en það er líka alveg rétt. Ég er mjög svartsýnn, af því ég er einn af þessu fólki sem lenti illa af beinum völdum af þessu fjármálafárviðri*. En bjartsýnin, hún kemur. Bjartsýnin kemur þegar svartsýnin hefur fengið að brjótast út. Það er mjög óvanalegt fyrir mig að vera svartsýnn, það var meira segja einu sinni sagt um mig að ég væri það bjartsýnn að ég gæti verið með sólgleraugu í kolniðamyrkri. Með bjartsýni kemur betra skap og meiri gleði, þess vegna vil ég sanna það fyrir þér að ég sé að verða bjartsýnn og bregða á leik. Á morgun, 10 Október á að birta próftöflu fyrir nemendur Háskóla Íslands. Ég með mína ofurklækjóttu leiðir til að finna hluti á netinu fann eina vefsíðu og þar sló ég inn nemendanúmerið og fékk próftöfluna mína, degi áður en aðrir. Ætla deila henni með ykkur, hún er æði. Ég þori að veðja að þetta sé ekki endanleg tafla, en ef hún væri endanleg, þá vill ég óska ykkur gleðilgra jóla.

* Fjármálafárviðri er bjartsýni íslendinga. Eitt snyrtilegasta og varkárnasta orð sem hægt er að finna yfir fjármálakreppu. Fjármálakreppa er niðurdrepandi og erfitt orð, Fjármálafárviðri gefur til kynna tímabundna niðursveiflu sem auðvelt er að laga. Wake up and smell the coffee, það er fjármálakreppa en ekki fjármálafárviðri, en ég býst við því að það fari eftir því hversu bjartsýn/n þú ert.

Posted in Blogroll.


Í tilefni dagsins.

Posted in Blogroll.


Að vera veikur.

Er engin synd. Það er hinsvegar ekkert upplífgandi að vera veikur. Gefið að þú sért að lesa þetta eru mjög miklar líkur að þú hefur upplifað það og er ég þá í raun að predika fyrir kórnum. Ég velti því fyrir mér er ég skrifaði þetta, hvernig það sé að reyna nota “Bandarísk” eða ensk máltæki á Íslensku. Ætli það hafi sömu áhrif?

Eitt sem gæti verið fjarstætt okkur Íslendingum er að segja um einhvern sem gekk vel að hann hefði “slegið hann út úr garðinum”  (e. Hit that one out of the park) sem á einfaldlega við um þegar hafnaboltamenn slá boltann út af vellinum, og yfir áhorfendurnar og út á bílastæði. Heimahlaup eins og það kallast á íslensku. Eitt sem við gætum kannast við. “Fugl í hendi eru betri en tveir í skógi” (e. A bird in the hand is worth two in the bush), þetta er nú meira alþjóðlegt. Véfengjandi Tómas(e. A Doubting Thomas) er eitt sem íslendingar kannast kannski ekki við en það er einhver sem þarf sönnur til þess að trúa einhverju. Einhver gæti sagt að það eigi við um mig.

Nú er storm viðvörun á suðvestur landinu og vil ég biðja alla um að gleyma regnhlífunum og vera jafn bjartsýn og ég og fara út í sund, með sólgleraugu.

Posted in Blogroll.


Góð auglýsing.

Ég hlustaði á svolítið skemmtilega auglýsingu í útvarpinu um dagin. Hún hljóðaði eitthvað á þennan hátt.

“Er kynlífið þitt svona”

Hljóð af gamalli druslu að fara í gang.

“Ef þú notar Durex smokka þá verður kynlífið þitt svona”

Hljóð af formúlu eitt bíl þjótandi framhjá.

Ok, fyrir það fyrsta er myndlíkingar kynlífs við kappakstur það heimskulegasta sem ég hef heyrt. Í öðru lagi þá vil ég alls ekki að kynlífið mitt væri eins og formúla 1 kappakstur. Ef ég yrði að velja myndlíkingu við bíla myndi ég vilja Ford Escalade. Lengi af stað rólegur í akstri og þægilegur. Alltaf fullnægður þegar ég parkera honum. Vildi bara deila þessari ridikjúlu með ykkur.

Posted in Blogroll.


Ein mynd.

Vildi bara deila með ykkur þessari skemmtilegu mynd. Skammast mín voða lítið fyrir að sakna Þórdísar minnar óendanlega mikið og vildi bara deila því með ykkur. Hérna er mynd af okkur frá Flórída. Þórdís, ég elska þig.

Þórdís og Tómas

Einnig á sömu nótum um kærkomið fólk. Ingimar, til hamingju með afmælið! 28 ára í dag.

Posted in Blogroll.


Skólinn byrjaður.

Jæja góðan daginn.

Þá er skólinn byrjaður. Magnað tímabil framundan, ég er persónulega einstaklega bjartsýnn á frábært skólaár. Nú er ég einmitt formaður nemendafélagsins míns í Tölvunarfræði og Hugbúnaðarverkfræði. Ég er einnig að útskrifast og verður það einkar spennandi að athuga hvort ég nái öllu. Þar af leiðir er einstaklega mikið stress og þá má ætla að ég verði duglegri að skrifa hér. Skrítið, veit en svona virka ég. Því meira að gera því meira kem ég í verk. Oftast af hlutum sem tengjast því sem ég á að vera gera ekki neitt.

Einnig vil ég benda þeim sem þekkja mig einstaklega vel á nýtt blog sem ég rakst á hjá henni kærustunni minni. Einstaklega skemmtileg rit sem eiga sér stað þarna. Einnig vil ég minna þá sem eru í tölvunarfræði og hugbúnaðarverkfræði að kíkja oft inn á www.nord.is það er einstaklega skemmtilegar fréttir sem rata þangað inn. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra þar sem ég ætla mér að kíkja á tónleika í kvöld. Jazzhátíð Reykjavíkur til sigurs.

Posted in Blogroll.


Samhyggjustefna

Jáh, við verðum nú að standa saman. Við gerðum það mjög vel um daginn þegar Íslendingum tókst að safna 35 milljónum fyrir brjóstakrabbameini. Mér finnst það einstaklega frábært, að Íslendingar, sem almennt eru frekar dónalegir og eigingjarnir (ég þar með talinn að sjálfssögðu, þar sem ég er nú Íslendingur). 35 milljónir eiga að hjálpa sjúkrahúsum við að kaupa inn tækjabúnað sem á auðveldara með að skynja krabbamein sem er nýbúið að myndast. Það er svo innilega frábært að ég vona að sem flestir fái að fara í þetta tæki sem oftast svo sem flestir sem greinast geta fjarlægt það sem fyrst svo það verði þeim ekki að bana. EN, það eru tveir punktar sem ég vil minnast á.

Ég geri mér grein fyrir því að til eru margar tegundir af krabbameini og það er ekki til ein og verður örugglega ekki til ein sprauta sem einfaldlega “bara lagar krabba”. En samhliða allri athyglinni sem brjóstakrabbamein fær vildi ég að meiri meðvitun um almennt krabbamein eða hið skaðlegasta væri vakin. Nú, hvernig er hægt að segja hið skaðlegasta ? Eru þau ekki öll manndrepandi ef þau greinast of seint? Ég veit það ekki, ég er ekki læknir né hef reynslu af krabbameini en tölfræðilega séð, þá er brjóstakrabbamein, af þessum þekktustu krabbameinum, sem veldur minnstum dauðföllum. Ég ætla vona það sé útaf allri athygli sem það hefur fengið í gegnum árin, meðvitund hjá mörgum konum (sem eru líklegri til að fá brjóstakrabbamein) um að fara í skoðun og athuga þetta allt saman og sækja í meðferð. Hinsvegar, samkvæmt alþjóða heilbrigðisstofnuninni, þá er krabbamein leiðandi orsök dauðsfalla í heiminum. Í kringum 58 milljónir látast  árlega, þar af 7.6 úr krabbameini, eða 13%. Ég er að vona það að það fólk sem greinist með brjóstakrabbamein sé bara það almennt duglegra að láta athuga svona hluti og greindara af því að brjóstakrabbamein telur fyrir 502þúsund dauðsföll árlega. Lungnakrabbamein telur fyrir 1.3 milljónir (17% af öllum krabba) og saman telja lungna-, lifra-, ristil- og  magakrabbamein fyrir 3.6 milljónir (47% af öllum krabba). Gefið, að stór hluti orsakana vegna lungnakrabbameins eru reykingar og 40% allra krabbameina er hægt að koma í veg fyrir með breyttu líferni, svo sem hollara fæði, betri hreyfingu og sleppa reykingum, en það breytir því ekki, þrátt fyrir að mínu mati að brjóstakrabbamein sé mest áberandi í mínu samfélagi, þá er það ekki það algengasta í heiminum. Ég vona að þessi umræða um brjóstakrabbamein skili sér með öðrum krabbameinum.

Hinn puntkurinn minn er sá að fyrir fáeinum vikum síðan, riðu yfir skelfilegir jarðskjálftar í kringum Selfoss og Hveragerði. Vissulega var þetta söfnunarátak undirbúið löngu áður en jarðskjálftarnir áttu sér stað, en ég vil samt minnast á þá. Í dag er kaupmáttur að lækka, þjóðarkjör landsmanna að lækka og hagfræði doktorar við Háskóla Íslands biðja landsmenn vinsamlegast um að spara eins mikið og hægt er næstu ár svo að allt fari ekki til fjandans. Hvar stend ég þá ? Hvar stendur þú þá ? Hvar standa lán allra landsmanna sem maður hefur einungis heyrt um að sé að hækka og hækka og hækka. Ég las það í fréttunum um daginn að uppbygging fyrir þá einstaklinga sem urðu hvað verst úr skjálftanum hefði stöðvað vegna verðbólgu. Það var samt enginn að tala um það, það bara gerðist og allir eru búnir að gleyma því. Á sama tíma ná Íslendingar að safna saman 35 milljónum til brjóstakrabbameins, sem er vissulega mjög, mjög frábært. Hvernig væri að standa bak við bræðrum okkar og systrum í Selfossi ? Söfnum fyrir þau. Hvað er ríkið til dæmis að gera? Ég veit það ekki nákvæmlega í sambandi við Hvergerðinga en ég veit að það er talið að í kringum 350 milljónir fari í að senda Íslendinga í öryggisráðið. Hvar í ósköpunum var þjóðaratkvæði um það ? Ég vil ekki að við förum í Öryggisráðið fyrir allan þennan pening (og hugsanlega mun mun meira, Tyrkir gefa upp að þeir muni eyða í kringum 3,7 milljörðum til að komast í Öryggisráðið) bara svo að það verði ekki hlustað á okkur. Við erum 300 þúsund manns. Það eru 4 * 10 í -7 veldi. Af hverju ættum við að hafa atkvæðisrétt í Öryggisráði? Hvað með styrki Ingibjargar sem eru vissulega að fara í frábært málefni, einungis til Afríku hefur framlag íslenska ríkisins hækkað um 9 milljónir. Árið 2003 voru 8 milljónir veittar til styrktar UNIFEM, í fyrra 47,4milljónir, í ár 87,5 milljónir. Þetta er svo yndislegt að við séum svona gjafmild en, eigum við efni á því ? Eigum við efni á því að láta Íslendinga úti frjósa og uppbyggingu eftir jarðskjálfta hjaðna? Ég vildi óska þess að við gætum gert bæði, en við eigum bara svo mikið af peningum, sem verðgildi þeirra fer sífellt rýrnandi.

Enn og aftur vil ég minna á að þetta eru allt frábær framlög til alls, en við þurfum líka að spyra okkur sjálf hvort við forgangsröðum rétt? Er náunginn mikilvægari en við sjálf? Ég tel að með þessum orðum hef ég sagt það sem enginn þorir að segja, eða gagnrýna. Er ég hálfviti fyrir að gagnrýna góðgerðarmál og góð framlög, eða er ég snjall að taka eftir því að góðgerðarmálunum er ekki beint í rétta átt? Endilega láttu mig vita um þá góðu hluti sem Íslendingar gera fyrir Íslendinga. Ég veit um eitt, fyrrverandi Verzlunarskólanemar, (Hreiðar már, Björgólfsfeðgar, Jón Ásgeir og fleirri) og núverandi auðjöfrar hafa gáfu Verzlunarskólanemum 50 milljónir króna (fyrir 3 árum) og voru þeir veittir til fólks á öllum skólaárum. Mér finnst það æðislegt.

Hér hægt að styrkja fólk eftir Suðurlandsskjálftann:

http://redcross.lausn.is/Apps/WebObjects/RedCross.woa/wa/dp?id=1002397

Heimlidir
Kostnaður við öryggisráð: http://eyjan.is/blog/2008/05/03/kotnadur-vegna-frambods-i-oryggisrad-sth-groflega-vanmetinn/

WHO – Cancer :

http://www.who.int/mediacentre/factsheets/fs297/en/index.html

UNIFEM – Ársskýrsla 2007:

http://www.unifem.is/unifem/images/stories/unifem_rsskrsla_07.pdf

Posted in Blogroll, Hugarórar.


Update – Framtíðarplön.

Búið að vera mikið að gera hjá mér. En ég er einmitt mjög óduglegur að blogga upp á síðkastið enda hef ég verið heima á Íslandi og allir sem hafa haft áhuga hafa fengið að frétta af mér. Hinsvegar er ég kannski þekktur fyrir að tilbúinn með hluti. Upp á síðkastið hef ég verið að plana næsta ár. Of snemmt? Tjah, betra að vera örugger með þetta en ég er að undirbúa það á þann hátt að vera tilbúinn með umsóknir í skóla. Í suma skóla þarf að senda inn umsókn fyrir jól, aðrir fyrir maí. Þannig að það er best að vera bara tilbúinn með umsóknir í marga skóla. Ég hef ákveðið að skjóta á allt sviðið, allt frá skólum sem eru mjög líklegir að samþykkja mig og geta veitt meira spennandi menntun er í boð á Ísland yfir í þá skóla sem væri einfaldlega ótrúlega gaman og heiður að komast inn í. Hér er listinn yfir skóla sem ég ætla sækja um, hingað til.

  • Oxford (GB)
  • Edinburgh (GB)
  • Chalmers (SE)
  • Royal Institute of Technology (SE)
  • Linkoping University (SE)
  • Norwegian University of Science and Technology (NO)
  • University of Oslo (NO)
  • Southampton University (GB)
  • Imperial College of London (GB)

Eins og þið sjáið þá er þetta allt í Evrópu en ég veit ekki hvort ég vil fara til bandaríkjanna nema þá fólk myndi borga mér fyrir að fara (styrkur). Mjög dýrt að læra þar. Samkvæmt mínum útreikningum er dýrasta námsárið í London fyrir 500 þúsund á ári, sem er jú jafn dýrt og í HR. Er ódýrara að lifa í Bretlandi? Veit ekki, en já, ef þið vitið um fleirri góða háskóla í Evrópu (bretlandi og norðurlöndunum fyrir utan Danmörk) þá megið endilega senda mér póst. Svo, vonandi ekki þangað til ég flyt næst til útlanda þá bara bíðið róleg af því ég er ekki mikið að blogga núna.

Posted in Blogroll, Hugarórar.